Genre: Science Fiction
About AsgrimurLocation: North Atlantic. Home Region: Age:28 Website: http://letsblowitup.blogspot.com Favorite writers: Jaroslav Hasek, Mikhail Bulgakov Non-noveling interests: Guns |
Joined: Octubre 30, 2004 This Year: Official Participant NaNoWriMo History: NaNoWriMo posts: 124 NaNoWriMo buddies: 1
|
|
|
|

Synopsis: Óhugnaðardalurinn
A man meets some creepy people at work. And then proceeds to work with them.
Excerpt: Óhugnaðardalurinn
Þegar Jónas renndi inn í stæði kom hann auga á hundinn hennar Korku gömlu, þar sem hann var að þefa af einhverju í garðinum. Ef það var hægt að kalla þennan auma grasbala við bílastæðið garð.
Þetta var tækifæri sem hann hafði beðið eftir: hann nálgaðist hundinn og blýstraði til hans:
„Komdu voffi... hérna... ég er með nammi handa þér,“ sagði Jónas og nuddaði saman fingrunum niðri við jörð til að vekja áhuga litla hundsins.
Hundurinn varð hans var, og horfði á hann. Það var ekki gott að segja hvort hann hafði mikinn áhuga á tilboði Jónasar, því þetta var jú bara hárkúla með tvö augu. En svo ákvað dýrið að Jónas væri áhugaverðari en hvað sem það var sem það hafði verið að nasa af, og kom skoppandi.
Þegar hundurinn kom til Jónasar til að skoða hvað hann var með, tók Jónas hundinn upp, og klappaði honum og lét vel að, svo kvikyndið færi ekki að gelta. Svo hraðaði hann sér inn, og flýtti sér upp tröppurnar að íbúðinni sinni.
Nú skildu þessar pöddur fá að kenna á því!
Jónas fór með hundinn inn í eldhús, opnaði skápinn og lét hundinn inn með öllum pöddunum.
„Sjáðu pöddurnar voffi! Éttu pöddurnar!“ sagði Jónas og benti á lífverurnar sem höfðu tekið sér bólfestu í skápnum. Hundurinn var mjög spenntur fyrir pöddunum, og sleikti þær upp af áfergju.
Jónas settist á gólfið og fylgdist með hundinum þar sem hann snerist í hringi inni á skáp í leit að fleiri pöddum til að innbyrða, en þær höfðu nú flestar vit á því að hlaupa í burtu. Jónasi datt í hug að hann ætti kannski frekar að kaupa eitur – en það var miklu skemmtilegra að horfa á hundinn redda þessu, þó hann næði þeim ekki öllum.
Það kom að því að hundurinn varð uppiskroppa með pöddur, og þá hleypti Jónas honum út.
Asgrimur's Writing Buddies
|
|


add as buddy
send NaNoMail
visit website